Fram - Keflavík á þriðjudag kl. 19:15
Þá er komið að næsta leik í Pepsi-deildinni en hann er gegn Fram þriðjudaginn 10. júní. Leikurinn verður á Laugardalsvelli og hefst kl. 19:15. Fyrir leikinn er Keflavík í 3.-4. sæti deildarinnar með 11 stig en Fram er í 9. sætinu með 5 stig. Þetta verður fyrsti leikur Fram á heimavelli sínum þetta sumarið og því er upplagt að skella sér í Laugardalinn og sjá skemmtilegan leik á þjóðarleikvanginum. Dómari leiksins verður Guðmundur Ársæll Guðmundsson, aðstoðardómarar þeir Halldór Breiðfjörð Jóhannsson og Oddur Helgi Guðmundsson en eftirlitsmaður KSÍ er Ólafur Ragnarsson.
Efsta deild
Keflavík og Fram hafa leikið 90 leiki í efstu deild. Sá fyrsti fór fram árið 1958 og lauk með 2-2 jafntefli þar sem Högni Gunnlaugsson og Hólmbert Friðjónsson skoruðu fyrir Keflavík. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin; Keflavík hefur unnið 35 leiki en Fram 28 og liðin hafa skilið jöfn 27 sinnum. Markatalan er 135-120, okkar liði í vil. Stærsti sigur Framara var 5-0 árið 2009 og Keflavík hefur þrisvar unnið með 5 marka mun; 5-0 árin 1965 og 2012 og 6-1 árið 2004. Mesti markaleikur liðanna var þó 6-5 heimasigur Keflavíkur 1964 en það ár varð Keflavík einmitt Íslandsmeistari í fyrsta sinn.
Sjö leikmenn sem í dag leika með Keflavík hafa skorað gegn Fram í efstu deild; Hörður Sveinsson hefur gert sex mörk, Sigurbergur Elísson, Jóhann B. Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson hafa gert þrjú mörk og Einar Orri Einarsson, Bojan Stefán Ljubicic og Frans Elvarsson eitt hver. Það er hins vegar Þórarinn Kristjánsson sem hefur gert flest mörk fyrir Keflavík gegn Fram í efstu deild eða 10, næstir koma feðgarnir Steinar Jóhannsson og Guðmundur Steinarsson með átta mörk hvor.
Bikarkeppnin
Liðin hafa leikið 11 leiki í bikarkeppninni og þar hafa Framarar betur. Þeir hafa sigrað 7 sinnum en Keflavík 4 sinnum. Markatalan er 13-17 fyrir Fram.
Í fyrra
Liðin léku að sjálfsögðu tvisvar í Pepsi-deildinni síðasta sumar. Fram vann fyrri leikinn á Nettó-vellinum 2-1. Sigurbergur Elísson gerði mark Keflavíkur í þeim leik en Hólmbert Friðjónsson og Steven Lennon skoruðu mörk Framara. Keflavík vann síðan seinni leikinn á Laugardalsvelli 3-2 en þar gerðu Einar Orri Einarsson, Bojan Stefán Ljubicic og Hörður Sveinsson mörk okkar liðs en Viktor Bjarki Arnarsson og Haukur Baldvinsson skoruðu fyrir Fram.
Bæði lið
Þó nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir bæði lið þessi í gegnum árin. Þar má nefna Ragnar heitinn Margeirsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Bjarna Hólm Aðalsteinsson, Andra Stein Birgisson, Guðmund Steinarsson, Helga Björgvinsson og Ólaf Pétursson. Nú er einn fyrrverandi leikmaður Fram í okkar liði en það er Paul McShane.
Síðustu leikir
Úrslit leikja Fram og Keflavíkur á heimavelli Framara hafa orðið þessi undanfarin ár:
2013 | Fram - Keflavík | 2-3 |
Einar Orri Einarsson Bojan Stefán Ljubicic Hörður Sveinsson |
2012 | Fram - Keflavík | 0-2 |
Frans Elvarsson Guðmundur Steinarsson |
2011 | Fram - Keflavík | 1-0 | |
2010 | Fram - Keflavík | 2-1 | Sjálfsmark |
2009 | Fram - Keflavík | 5-0 | |
2008 | Fram - Keflavík | 0-2 | Þórarinn Kristjánsson 2 |
2007 | Fram - Keflavík | 2-2 |
Guðmundur Steinarsson Þórarinn Kristjánsson |
2005 | Fram - Keflavík | 2-3 |
Stefán Örn Arnarson Hörður Sveinsson Hólmar Örn Rúnarsson |
2004 | Fram - Keflavík | 1-6 |
Hólmar Örn Rúnarsson 2 Hörður Sveinsson 2 Þórarinn Kristjánsson Guðmundur Steinarsson |
2002 | Fram - Keflavík | 1-1 | Magnús Þorsteinsson |
Leikurinn
Að þessu sinni rifjum við upp sögulegan leik Fram og Keflavíkur á Laugardalsvelli árið 2004. Leikurinn var í síðustu umferð deildarinnar það ár og Keflavík vann stórsigur, 6-1. Framarar voru í harðri fallbaráttu og sluppu á ótrúlegan hátt við fall úr efstu deild. Þrátt fyrir að deildinni væri lokið voru undanúrslit bikarkeppninnar framundan hjá Keflavík sem varð einmitt bikarmeistari þetta ár. Að neðan má sjá umfjöllun Morgunblaðsins um leikinn.
Smellið á fréttina fyrir neðan til að sjá stærri útgáfu.