Frans bestur í 2. umferð
Frans Elvarsson var valinn besti leikmaður 2. umferðar Pepsi-deildarinnar af Stöð 2 Sport en valið tengist umfjöllun stöðvarinnar um deildina. Frans átti sannkallaðan stórleik í 4-0 sigri á Grindavík þar sem hann skoraði tvö af mörkum Keflavíkur. Hann fékk verðlaunin afhent fyrir heimaleikinn gegn Stjörnunni en þau voru kassi af Pepsi og út að borða. Jón Örvar tók myndina.