Fréttir

Knattspyrna | 30. mars 2012

Frans og músikin

Eftir því sem tækninni fleygir fram og fólk getur hlustað á tónlist nánast hvar og hvenær sem er hafa íþróttamenn sífellt notast meira við tónlist.  Hún er þá notuð til að æsa sig upp og róa sig niður eftir atvikum og auðvitað til að gera hlutina aðeins skemmtilegri.  Frans Elvarsson veltir hlutverki tónlistarinnar í boltanum fyrir sér í skemmtilegum pistli á fótbolta.net og ræðir þar m.a. um Keflavíkurliðið og tónlistarsmekkinn á þeim bænum.