Fréttir

Frítt á síðasta heimaleikinn
Knattspyrna | 2. október 2014

Frítt á síðasta heimaleikinn

Knattspyrnudeild Keflavíkur ásamt Nesfisk ehf. og Lagnaþjónustu Suðurnesja bjóða frítt á leik Keflavíkur og Víkings laugardaginn 4. október kl. 13:30.  Leikurinn verður á Nettó-vellinum í Keflavík en þetta er síðasti leikur okkar í Pepsi-deildinni þetta sumarið.

Um leið og Knattspyrnudeildin vill þakka stuðningsmönnum sínum fyrir frábæran stuðning við liðið í sumar viljum við bjóða öllum frítt á leikinn.  Við Keflvíkingar eigum öfluga stuðningmenn sem fylgja liðinu sínu í gegnum súrt og sætt. Við fengum viðurkenningu fyrir bestu stuðningsmennina í fyrri hluta mótsins og það sýnir okkur að okkar fólk er alvöru stuðningmenn.

Dagskráin byrjar kl. 12:00 þegar kveikt verður upp á grillinu í félagsheimilinu í íþróttahúsinu við Sunnubraut.  Þar verður hægt að kaupa hamborgara og Coke á 1000 kr.

Við vonum að stuðningsmenn nýti þetta boð og fjölmenni á leikinn.