Fylkir - Keflavík á fimmtudag kl. 19:15
Keflavík heimsækir Fylki í 14. umferð Pepsi-deildar karla á fimmtudag. Leikurinn fer fram á heimavelli Fylkismanna í Árbænum og hefst kl. 19:15. Fyrir umferðina er Keflavík í 4.-5. sæti deildarinnar með 20 stig en Fylkismenn eru í 9. sætinu með 15 stig. Það eru því fá stig sem skilja liðin að í deildinni þessa dagana og því er hvert stig og hver leikur mikilvægur. Dómari leiksins verður Jóhannes Valgeirsson, aðstoðardómarar þeir Einar Sigurðsson og Sverrir Gunnar Pálmason en eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.
Keflavík og Fylkir hafa leikið 25 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1989. Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 10 leikjanna, átta sinnum hefur orðið jafntefli en Fylkir hefur unnið 7 leiki. Markatalan er 31-35 fyrir Fylki. Stærsti sigur Fylkis er 4-0 árin 2007 og 2000 en Keflavík hefur mest náð að sigra Fylki með 2ja marka mun. Sjö leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Fylkismönnum í efstu deild. Guðmundur Steinarsson hefur skorað sjö mörk, Hólmar Örn Rúnarsson hefur gert þrjú, Haukur Ingi Guðnason og Hörður Sveinsson hafa skorað tvö mörk og þeir Magnús Þorsteinsson, Guðjón Antoníusson og Haraldur Freyr Guðmundsson hafa gert eitt mark hver.
Liðin mættust 8 sinnum í næstefstu deild á árunum 1981-1992. Keflavík vann 6 leiki, einum lauk með jafntefli og Fylkir vann einn leik. Markatalan í B-deildinni er 15-6 fyrir Keflavík.
Liðin hafa mæst þrisvar sinnum í bikarkeppni KSÍ, árin 1989, 1995 og 2004. Keflavík hefur unnið alla þrjá leikina og markatalan er 5-1.
Liðin mættust fyrr í sumar í 4. umferð Pepsi-deildarinnar og þá á Njarðtaksvellinum í Njarðvík. Keflavík vann þann leik 2-1 þar sem Guðmundur Steinarsson og Magnús Þorsteinsson skoruðu fyrir Keflavík en Kjartan Ágúst Breiðdal fyrir Fylkismenn.
Keflavík og Fylkir hafa yfirleitt ekki afrekað mikið á útivöllum í leikjum liðanna. Fylkir hefur aldrei unnið útileik gegn Keflavík í efstu deild og Keflavík hefur aðeins einu sinni unnið í Árbænum. Það var árið 2005 þegar Hólmar Örn Rúnarsson gerði eina mark leiksins. Annars hefur Fylkir unnið sjö heimaleiki sína gegn Keflavík og fjórum leikjum hefur lokið með jafntefli.
Það hefur ekki verið mikill samgangur milli félaganna tveggja í gegnum árin. Þórir Sigfússon þjálfaði reyndar bæði liðin á sínum tíma. Þó má ekki gleyma að Haukur Ingi Guðnason lék með Fylki og núverandi aðstoðarþjálfari liðsins er Keflvíkingurinn Kristinn Guðbrandsson.
Úrslit í leikjum Fylkis og Keflavíkur í efstu deild á heimavelli Fylkis hafa orðið þessi:
2009 |
Fylkir - Keflavík |
2-0 | |||
2008 |
Fylkir - Keflavík |
3-3 | Guðmundur Steinarsson 2 Hörður Sveinsson | ||
2007 |
Fylkir - Keflavík |
4-0 | |||
2006 |
Fylkir - Keflavík |
2-1 | Guðmundur Steinarsson | ||
2005 |
Fylkir - Keflavík |
0-1 | Hólmar Örn Rúnarsson | ||
2004 |
Fylkir - Keflavík |
2-0 | |||
2002 |
Fylkir - Keflavík |
2-0 | |||
2001 |
Fylkir - Keflavík |
2-2 | Haukur Ingi Guðnason Þórarinn Kristjánsson | ||
2000 |
Fylkir - Keflavík |
4-0 | |||
1996 |
Fylkir - Keflavík |
1-0 | |||
1993 |
Fylkir - Keflavík |
2-2 | Gestur Gylfason Sverrir Þór Sverrisson | ||
1989 |
Fylkir - Keflavík |
0-0 |