Fréttir

Knattspyrna | 29. maí 2011

Fylkir - Keflavík á mánudag kl. 19:15

Þó ótrúlegt sé er komið að 6. umferð Pepsi-deildarinnar og hjá okkar liði þýðir það leik gegn Fylki mánudaginn 30. maí.  Leikurinn fer fram á heimavelli Fylkismanna í Árbænum og hefst kl. 19:15.  Fyrir umferðina er Keflavík í 4.-5. sæti deildarinnar með 8 stig en Fylkismenn eru í 6.-7. sæti með 7 stig.  Það eru því fá stig sem skilja liðin að í deildinni þessa dagana og því er hvert stig og hver leikur mikilvægur.  Dómari leiksins verður Erlendur Eiríksson, aðstoðardómarar þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon en eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.

Keflavík og Fylkir hafa leikið 26 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1989.  Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 11 leikjanna, átta sinnum hefur orðið jafntefli en Fylkir hefur unnið 7 leiki.  Markatalan er 33-36 fyrir Fylki.  Stærsti sigur Fylkis er 4-0 árin 2007 og 2000 en Keflavík hefur mest náð að sigra Fylki með 2ja marka mun.  Sex leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Fylkismönnum í efstu deild.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað átta mörk, Haukur Ingi Guðnason tvö mörk og þeir Jóhann B. Guðmundsson, Magnús Þorsteinsson, Guðjón Antoníusson og Haraldur Freyr Guðmundsson hafa gert eitt mark hver.

Liðin mættust 8 sinnum í næstefstu deild á árunum 1981-1992.  Keflavík vann 6 leiki, einum lauk með jafntefli og Fylkir vann einn leik.  Markatalan í B-deildinni er 15-6 fyrir Keflavík.

Liðin hafa mæst þrisvar sinnum í bikarkeppni KSÍ, árin 1989, 1995 og 2004.  Keflavík hefur unnið alla þrjá leikina og markatalan er 5-1. 

Liðin mættust tvisvar í Pepsi-deildarinni síðasta sumar og vann Keflavík báða leikina 2-1.  Fyrri leikurinn fór fram á Njarðtaksvellinum í Njarðvík þar sem Guðmundur Steinarsson og Magnús Þorsteinsson skoruðu fyrir Keflavík en Kjartan Ágúst Breiðdal fyrir Fylkismenn.  Í seinni leiknum á Fylkisvelli skoruðu Guðmundur og Jóhann B. Guðmundsson fyrir okkar lið en Albert Ingason gerði mark Fylkis.

Keflavík og Fylkir hafa yfirleitt ekki afrekað mikið á útivöllum í leikjum liðanna.  Fylkir hefur aldrei unnið útileik gegn Keflavík í efstu deild og með sigrinum í Árbænum í fyrra tvöfaldaði Keflavík fjölda sigurleikja sinna þar.  Fyrri sigurinn kom árið 2005 þegar Hólmar Örn Rúnarsson gerði eina mark leiksins.  Annars hefur Fylkir unnið sjö heimaleiki sína gegn Keflavík og fjórum leikjum hefur lokið með jafntefli.

Það hefur ekki verið mikill samgangur milli félaganna tveggja í gegnum árin.  Þórir Sigfússon þjálfaði reyndar bæði liðin á sínum tíma.  Þó má ekki gleyma að Haukur Ingi Guðnason lék með Fylki og núverandi aðstoðarþjálfari liðsins er Keflvíkingurinn Kristinn Guðbrandsson.

Úrslit í leikjum Fylkis og Keflavíkur í efstu deild á heimavelli Fylkis hafa orðið þessi:

2010

Fylkir - Keflavík

1-2 Guðmundur Steinarsson
Jóhann B. Guðmundsson
2009

Fylkir - Keflavík

2-0
2008

Fylkir - Keflavík

3-3 Guðmundur Steinarsson 2
Hörður Sveinsson
2007

Fylkir - Keflavík

4-0
2006

Fylkir - Keflavík

2-1 Guðmundur Steinarsson
2005

Fylkir - Keflavík

0-1 Hólmar Örn Rúnarsson
     2004    

Fylkir - Keflavík

2-0
2002

Fylkir - Keflavík

2-0  
2001

Fylkir - Keflavík

2-2 Haukur Ingi Guðnason
Þórarinn Kristjánsson
2000

Fylkir - Keflavík

4-0
1996

Fylkir - Keflavík

1-0
1993

Fylkir - Keflavík

2-2 Gestur Gylfason
Sverrir Þór Sverrisson
1989

Fylkir - Keflavík

0-0