Fylkir - Keflavík á miðvikudag
Það verður toppleikur í Árbænum á miðvikudag þegar tvö efstu liðin í Landsbankadeildinni, Fylkir og Keflavík, takast á. Leikurinn hefst kl. 20:00 á Fylkisvelli en þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Sýn.
Keflavík og Fylkir hafa mæst 12 sinnum í efstu deild; Keflavík hefur unnið fjóra leiki og Fylkir þrjá en fimm leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 15-17, Fylki í vil. Liðin léku síðast saman í efstu deild árið 2002, þá vann Keflavík heimaleikinn 3-1 en tapaði 0-2 í Árbænum.
Liðin hafa einnig leikið 8 leiki í B-deild, fyrst 1981 en síðast 1992. Þar hefur Keflavík sex sinnum farið með sigur af hólmi, Fylkismenn aðeins einu sinni en einum leik lauk með jafntefli. Markatalan er 15-5, okkur í hag.
Keflavík hefur tvisvar mætt Fylki í bikarkeppninni og unnið báða leikina og markatalan er 4-1.
Tveir leikmenn sem nú leika með Keflavík hafa skorað gegn Fylki í deildarleik. Guðmundur Steinarsson og Þórarinn Kristjánsson hafa báðir skorað tvívegis gegn Fylkismönnum í efstu deild. Þess má geta að Haukur Ingi Guðnason hefur einnig skorað tvívegis gegn Fylki fyrir Keflavík en hann er nú í röðum Fylkismanna þó Haukur sé nú úr leik vegna meiðsla.
(Heimild: Íslensk knattspyrna / Víðir Sigurðsson)
Sjá upplýsingapakka um leikinn á heimasíðu KSÍ (pdf.-skjal).