Fylkir - Keflavík á sunnudag kl. 19:15
Þá er loksins komið að upphafi Pepsi-deildarinnar og hjá okkar liði þýðir það leik gegn Fylki sunnudaginn 6. maí. Leikurinn fer fram á heimavelli Fylkismanna í Árbænum og hefst kl. 19:15. Þessum liðum er víða spáð baráttu í neðri hluta deildarinnar og þau leggja því væntanlega mikla áherslu á að byrja mótið vel. Dómari leiksins verður Gunnar Jarl Jónsson, aðstoðardómarar þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Andri Vigfússon en eftirlitsmaður KSÍ er Sigurður Hannesson.
Keflavík og Fylkir hafa leikið 28 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1989. Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 11 leikjanna, átta sinnum hefur orðið jafntefli en Fylkir hefur unnið 9 leiki. Markatalan er 35-40 fyrir Fylki. Stærsti sigur Fylkis er 4-0 árin 2007 og 2000 en Keflavík hefur mest náð að sigra Fylki með 2ja marka mun. Fimm leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Fylkismönnum í efstu deild. Guðmundur Steinarsson hefur skorað níu mörk, Jóhann B. Guðmundsson tvö og þeir Magnús Þorsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson og Jóhann R. Benediktsson hafa gert eitt mark hvor.
Liðin mættust 8 sinnum í næstefstu deild á árunum 1981-1992. Keflavík vann 6 leiki, einum lauk með jafntefli og Fylkir vann einn leik. Markatalan í B-deildinni er 15-6 fyrir Keflavík.
Liðin hafa mæst þrisvar sinnum í bikarkeppni KSÍ, árin 1989, 1995 og 2004. Keflavík hefur unnið alla þrjá leikina og markatalan er 5-1.
Liðin mættust tvisvar í Pepsi-deildarinni síðasta sumar og vann Fylkir báða leikina 2-1. Fyrri leikurinn fór fram á Fylkisvelli þar sem Jóhann B. Guðmundsson skoraði fyrir Keflavík en Ingimundur Níels Óskarsson gerði bæði mörk Fylkismenn. Í seinni leiknum á Nettó-vellinum skoraði Guðmundur Steinarsson fyrir okkar lið en Albert Ingason og Ingimundur Níels Óskarsson gerðu mörk Fylkis.
Það hefur ekki verið mikill samgangur milli félaganna tveggja í gegnum árin en nú leikur Keflvíkingurinn Magnús Þórir Matthíasson með Fylki. Áður hafði Haukur Ingi Guðnason leikið með báðum félögunum en hann er nú aðstoðarþjálfari Fylkisliðsins. Þórir Sigfússon þjálfaði reyndar bæði liðin á sínum tíma og Kristinn Guðbrandsson var aðstoðarþjálfari Fylkis síðustu tvö ár.
Úrslit í leikjum Fylkis og Keflavíkur í efstu deild á heimavelli Fylkis hafa orðið þessi:
2011 |
Fylkir - Keflavík |
2-1 | Jóhann B. Guðmundsson | ||
2010 |
Fylkir - Keflavík |
1-2 |
Guðmundur Steinarsson Jóhann B. Guðmundsson |
||
2009 |
Fylkir - Keflavík |
2-0 | |||
2008 |
Fylkir - Keflavík |
3-3 |
Guðmundur Steinarsson 2 Hörður Sveinsson |
||
2007 |
Fylkir - Keflavík |
4-0 | |||
2006 |
Fylkir - Keflavík |
2-1 | Guðmundur Steinarsson | ||
|
2005 |
Fylkir - Keflavík |
0-1 | Hólmar Örn Rúnarsson | |
2004 |
Fylkir - Keflavík |
2-0 | |||
2002 |
Fylkir - Keflavík |
2-0 | |||
2001 |
Fylkir - Keflavík |
2-2 |
Haukur Ingi Guðnason Þórarinn Kristjánsson |
||
2000 |
Fylkir - Keflavík |
4-0 | |||
1996 |
Fylkir - Keflavík |
1-0 | |||
1993 |
Fylkir - Keflavík |
2-2 |
Gestur Gylfason Sverrir Þór Sverrisson |
||
1989 |
Fylkir - Keflavík |
0-0 |