Fréttir

Fylkir - Keflavík á sunnudag kl. 19:15
Knattspyrna | 10. ágúst 2013

Fylkir - Keflavík á sunnudag kl. 19:15

Eftir góðan og mikilvægan sigur í síðasta leik mæta okkar menn sjálfsagt ákveðnir í næsta leik í Pepsi-deildinni sem er ekki síður mikilvægur.  Hann verður gegn Fylki sunnudaginn 11. ágúst og hefst leikurinn á Fylkisvellinum kl. 19:15.  Fyrir leikinn er Keflavík í 10.-11 sæti deildarinnar með 10 stig en Fylkir er í  8.-9. með 13 stig.  Ekki má gleyma því að okkar lið hefur leikið einum leik færra en liðin í næstu sætum fyrir ofan.  Það er því óhætt að segja að hér sé kominn annar sex stiga leikurinn í röð.  Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar þeir Birkir Sigurðarson og Valdimar Pálsson en eftirlitsmaður KSÍ er Jón Sigurjónsson.

Keflavík og Fylkir hafa leikið 31 leik í efstu deild, þann fyrsta árið 1989.  Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 11 leikjanna, tíu sinnum hefur orðið jafntefli en Fylkir hefur unnið tíu leiki.  Markatalan er 38-45 fyrir Fylki.  Stærsti sigur Fylkis er 4-0 árin 2007 og 2000 en Keflavík hefur mest náð að sigra Fylki með 2ja marka mun.  Fimm leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Fylkismönnum í efstu deild.  Hörður Sveinsson hefur gert þrjú mörk, Jóhann B. Guðmundsson tvö og þeir Arnór Ingvi Traustason, Magnús Þorsteinsson og Haraldur Freyr Guðmundsson hafa gert eitt mark hver.

Liðin mættust 8 sinnum í næstefstu deild á árunum 1981-1992.  Keflavík vann 6 leiki, einum lauk með jafntefli og Fylkir vann einn leik.  Markatalan í B-deildinni er 15-6 fyrir Keflavík.

Liðin hafa mæst þrisvar sinnum í bikarkeppni KSÍ, árin 1989, 1995 og 2004.  Keflavík hefur unnið alla þrjá leikina og markatalan er 5-1. 

Liðin mættust á Nettó-vellinum fyrr í sumar og gerðu þá 2-2 jafntefli.  Arnór Ingvi Traustason og Hörður Sveinsson skoruðu fyrir Keflavík en Tryggvi Guðmundsson og Ásgeir Eyþórsson gerðu mörk Fylkis.

Það hefur ekki verið mikill samgangur milli félaganna tveggja í gegnum árin en Magnús Þórir Matthíasson lék auðvitað með Fylki í fyrra en er nú kominn aftur á heimaslóðir.  Áður hafði Haukur Ingi Guðnason leikið með báðum félögunum en hann er nú aðstoðarþjálfari Fylkisliðsins.  Þórir Sigfússon þjálfaði reyndar bæði liðin á sínum tíma og Kristinn Guðbrandsson var aðstoðarþjálfari Fylkis í tvö ár.

Úrslit í leikjum Fylkis og Keflavíkur í efstu deild á heimavelli Fylkis hafa orðið þessi undanfarin ár:

2012 Fylkir - Keflavík 3-3 Hilmar Geir Eiðsson
2011 Fylkir - Keflavík 2-1 Jóhann B. Guðmundsson
2010 Fylkir - Keflavík 1-2 Guðmundur Steinarsson
Jóhann B. Guðmundsson
2009 Fylkir - Keflavík 2-0 Hólmar Örn Rúnarsson
2008 Fylkir - Keflavík 3-3 Guðmundur Steinarsson 2
Hörður Sveinsson
2007 Fylkir - Keflavík 4-0  
2006 Fylkir - Keflavík 2-1 Guðmundur Steinarsson
2005 Fylkir - Keflavík 0-1 Hólmar Örn Rúnarsson
2004 Fylkir - Keflavík 2-0  
2002 Fylkir - Keflavík 2-0