Fylkisleikurinn hjá Sportmönnum
Næstkomandi fimmtudag verður fyrsti heimaleikur Keflvíkinga. Að venju verður hittingur fyrir leik, að þessu sinni í Sal Reykjaneshallarinnar og mun það fyrirkomulag verða við lýði þar til liðið byrjar að spila á sínum velli og opnar húsið kl. 18:00. Willum mun mæta til leiks og fara aðeins yfir málin. Einn stjórnarmaður mun ennfremur taka til máls. Þar sem liðið leikur fyrstu leiki sína á heimavelli Njarðvíkinga verður ekki hist í hálfleik vegna aðstöðuleysis.
Keflavík byrjar mótið af miklum krafti og afar ánægjulegt að liðið skuli vera með fullt hús stiga eftir tvo erfiða útileika.
Hér að neðan eru svo upplýsingar um félagsgjaldið og hvernig hægt er að greiða það.
Félagsgjaldið verður svipað og í fyrra eða kr. 12.000 og er inn í því miðar á alla heimaleiki liðsins í Pepsí deildinni (gildir ekki á bikar og Evrópuleiki). Þeir sem eru með ársmiða eða sjá sér ekki fært að kaupa ársmiða en vilja vera í félaginu geta greitt kr. 3.000. Fyrir leik og í hálfleik (þó ekki til að byrja með) verður svo boðið upp á kaffi og með því. Hægt er að greiða kr. 5.000 fyrir allt tímabilið eða greiða kr. 500 fyrir hvert skipti (þetta á við um kaffið fyrir leik og í hálfleik). Ef menn eru að taka allan pakkann (þ.e. árskort, félagsgjaldið og kaffið) þá er þetta kr. 17.000. Þið getið sent póst (sigmar@tm.is) ef þið ætlið að vera með. Við munum einnig taka niður nöfn á þeim sem ætla að vera í félaginu og eins við greiðslum fyrir fyrsta leik. Við tökum þó ekki við kortum. Eins geta menn lagt inn á reikning: (1109-05-410176 kt. 090570-4719) og senda kvittun á karlf@mitt.is eða sigmar@tm.is.
Menn greiða því:
17.000 ef þeir taka allan pakkann (þ.e. árskort, félagsgjald og kaffi)
12.000 ef þeir ætla að sleppa kaffinu og greiða svo kr. 500 þegar þeir mæta
3.000 ef þeir eru með árskort og greiða bara félagsgjaldið
Með kveðju,
Stjórnin