Fyrsta tap sumarsins gegn ÍBV
Keflavík tapaði sínum fyrsta leik í Pepsi-deildinni þegar ÍBV kom í heimsókn og vann 2-0 í 5. umferðinni. Það er óhætt að segja að öflug byrjun Eyjamanna hafi gert út um leikinn en þeir skoruðu bæði mörk sín í upphafi leiks. Tryggvi Guðmundsson gerði fyrsta markið strax á 1. mínútu og Andri Ólafsson bætti við öðru marki eftir um 10 mínútna leik. Eftir leikinn er Keflavík í 4.-5. sæti deildarinnar með 8 stig.
Næsti leikur er útileikur gegn Fylki mánudaginn 30. maí kl. 19:15.
-
Leikurinn var 62. leikur Keflavíkur og ÍBV í efstu deild. Þetta var 26. sigur ÍBV, Keflavík hefur unnið 24 leiki en tólf hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 94-103 fyrir ÍBV.
-
Fyrir leikinn hafði Keflavík unnið síðustu þrjá heimaleiki gegn ÍBV og var markatalan í þeim leikjum 16-4.
-
Í fyrsta sinn í sumar tókst Keflavík ekki að skora í Pepsi-deildinni. Það gerðist síðast í 0-2 tapi gegn Haukum í fyrra en síðan hafði liðið skorað í átta leikjum í röð í efstu deild.
-
Guðjón Antoníusson lék ekki með vegna meiðsla og tók Brynjar Örn Guðmundsson sæti hans í liðinu. Guðjón hefur aðeins misst af fimm leikjum í efstu deild síðastliðin sjö ár og hafði leikið 137 af 142 leikjum Keflavíkur frá því liðið tryggði sér sæti í deildinni árið 2004 eftir eitt ár í næstefstu deildinni.
Fótbolti.net
,,Það sló okkur kalda. Hvort sem það var að við vorum ekki tilbúnir frá fyrsta flauti, það er erfitt að meta það, en það sló okkur kalda. Þeir fylgja þessu eftir með góðu marki, skoti fyrir utan. Þeir völdu undan vindinum í fyrri hálfleik og vissu að þeir myndu fá skotfæri og nýttu það vel og við áttum á brattann að sækja allan tímann," sagði Willum.
,,Mér fannst við reyna vinna okkur inn í leikinn mjög vel og vorum að reyna spila boltanum vel á milli okkar. Það er erfitt að láta margar sendingar innan liðsins heppnast og sérstaklega með vindinum þá er þetta spurning um að setja hann upp á teiginn, eins og þeir gerðu."
Fréttablaðið / Vísir
Keflvíkingum hefur gengið vel í upphafi móts og voru í öðru sæti deildarinnar fyrir leiki kvöldsins. En þeir fengu kalda vatnsgusu í andlitið strax á fyrstu mínútu er Tryggvi skoraði fyrsta mark ÍBV eftir aðeins 50 sekúndur - eða svo. Hann fékk flotta sendingu frá Andra Ólafssyni fyrirliða og afgreiddi knöttinn í nærhornið með hnitmiðuðu skoti.
Andri sjálfur skoraði svo annað mark ÍBV, í þetta sinn eftir sendingu Matt Garner. Mark hans var ekki síður glæsilegt, fast skot rétt utan vítateigs í nærhornið. Staðan skyndilega orðin 2-0 og Keflvíkingar í tómu basli.
Ómar 6, Goran 4, Brynjar Örn 6, Adam 6, Haraldur 6, Einar Orri 6, Andri Steinn 7, Jóhann Birnir 4 (Bojan -), Hilmar Geir 4 (Grétar 5), Magnús Sverrir 3 (Magnús Þórir 5), Guðmundur 6.
Morgunblaðið / Mbl.is
Seinni hálfleikur einkenndist af miklu miðjuþófi hjá báðum liðum og var lítið markvert sem gerðist nema þá stangarskot frá Andra Steini Birgissyni sem stuðningsmenn Keflvíkinga vildu meina að hefði jafnvel farið yfir marklínuna en línuvörðurinn var afar illa staðsettur til þess að ná að sjá atvikið. Eyjamenn voru svo sem ekkert heldur að sýna neina heimsklassa takta frekar en Keflvíkingar og í raun langt frá því. En það sem gerði stórt strik í gæði leiksins og spil liðanna var rokið á vellinum og mátti sjá langar leiðir að það var afar erfitt fyrir bæði lið að byggja upp spil við þessar aðstæður. Úrslit leiksins eru hinsvegar verðskulduð má segja og Eyjamenn fóru sáttir heim með öll þrjú stig kvöldsins.
M: Haraldur, Andri Steinn.
Víkurfréttir
Keflvíkingar virtust örlítið sprækari í upphafi síðari hálfleiks en ÍBV vörðust vel og Keflvíkingar sköpuðu ekki mikið af færum. Umdeilt atvik átti sér stað þegar rúmur klukkutími var búinn af leiknum. Þá virtist sem skot Keflvíkinga sem hafnaði í báðum stöngunum hafi farið inn fyrir línuna en aðstoðardómarinn var ekki í góðri aðstöðu til að sjá atvikið. Lokatölur því 0-2 og fyrsta tap Keflvíkinga á leiktíðinni staðreynd.
Pepsi-deild karla, Nettó-völlurinn, 22. maí 2011
Keflavík 0
ÍBV 2 (Tryggvi Guðmundsson 1., Andri Ólafsson 10.)
Keflavík: Ómar Jóhannsson, Goran Jovanovski, Brynjar Örn Guðmundsson, Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Hilmar Geir Eiðsson (Magnús Þórir Matthíasson 63.), Jóhann Birnir Guðmundsson (Bojan Stefán Ljubicic 83.), Einar Orri Einarsson, Andri Steinn Birgisson, Magnús Sverrir Þorsteinsson (Grétar Hjartarson 63.), Guðmundur Steinarsson.
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Ásgrímur Rúnarsson, Magnús Þór Magnússon, Viktor Smári Hafsteinsson.
Gul spjöld: Einar Orri Einarsson (68.), Brynjar Örn Guðmundsson (72.), Andri Steinn Birgisson (90.).
Dómari: Örvar Sær Gíslason.
Aðstoðardómarar: Einar Sigurðsson og Sverrir Gunnar Pálmason.
Varadómari: Valgeir Valgeirsson.
Eftirlitsdómari: Eyjólfur Ólafsson.
Áhorfendur: 1.063.
Adam og Tryggvi í kröppum dansi.
(Mynd: Eygló Eyjólfsdóttir)