Fyrsta titilsins minnst
Í leiknum við KR á uppstigningadag 20. maí kl. 19:15 verður þess minnst að 40 ár eru liðin frá því að Keflavík varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Þá gerði Keflavík jafntefli við KR í síðasta leik mótsins í Njarðvíkum 1-1 sem nægði til sigurs í mótinu. Gríðarleg stemmning var á vellinum og mættu 5000 manns og er það enn vallarmet hjá Keflavík. Í upphafi leiksins gegn KR verða gömlu hetjurnar heiðraðar og áhorfendum gefst tækifæri til að hylla þá, einnig mæta á völlinn KR-ingar sem tóku þátt í leiknum forðum til að samgleðjast okkur Keflvíkingum. Ýmislegt verður gert til að krydda leikinn enn frekar og verður skýrt frá því á síðunni þegar nær leiknum dregur. Við hvetjum alla Reyknesinga til að fjölmenna á leikinn og hvetja okkar unga og skemmtilega lið.
Ein frægasta mynd keflvískrar knattspyrnusögu: Högni Gunnlaugsson fyrirliði
Keflavíkurliðsins fer síðastur inn í SBK-rútuna til Keflavíkur eftir að hafa tekið
við bikarnum á Laugardalsvellinum. Þar fengu leikmenn Keflavíkur sigurlaun
sín eftir leik KR og ÍA. Myndina tók Heimir Stígsson.