Fréttir

Fyrsti heimaleikur - Ársmiðasala í dag
Knattspyrna | 10. maí 2013

Fyrsti heimaleikur - Ársmiðasala í dag

Þá styttist í fyrsta heimaleikinn í Pepsi-deildinni en það er sannkallaður stórleikur gegn KR-ingum sunnudaginn 12. maí kl. 19:15.  Við hvetjum að sjálfsögðu alla Keflvíkinga til að fjölmenna á leikinn og styðja okkar lið.

Enn er tækifæri til að tryggja sér miða á alla heimaleiki Keflavíkur í Pepsi-deildinni á góðu verðien hægt er að nálgast ármiða á skrifstofu aðalstjórnar Keflavíkur í dag föstudag kl. 10:00-15.30.  Hver miði kostar 13.000 kr. en það er sama verð og í fyrra.

Við hvetjum stuðningsmenn til að kaupa ársmiða á leiki okkar.  Verðið er auðvitað hagstætt og um leið styður fólk deildina og knattspyrnuna í Keflavík.

Nánari upplýsingar um miðasöluna veitir Einar Haraldsson í símum 421-3044 og 897-5204.