Fyrsti leikur ársins
Þá er komið að fyrsta mótsleik ársins hjá okkar mönnum en hann er í B-deild Fótbolta.net-mótsins. Andstæðingurinn er Huginn/Höttur/Leiknir sem tefla fram sameiginlegu liði í mótinu.
Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni í kvöld, föstudag kl. 20:20. Dómari verður Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson og aðstoðardómarar þeir Hjalti Þór Halldórsson og Breki Sigurðsson.
Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta og styðja okkar menn.