Fyrsti leikur færður á mánudag
Fyrsta leik okkar í Pepsi-deildinni í ár hefur verið frestað um einn dag og Keflavík byrjar því á mánudaginn þegar við mætum FH á Kaplakrikavelli kl. 19:15. Ennþá er frost á hluta vallarins og því þótti ekki ráðlegt að leika á honum á sunnudaginn eins og áætlað var.