Fréttir

Fyrsti sigur sumarsins hjá stelpunum
Knattspyrna | 10. ágúst 2014

Fyrsti sigur sumarsins hjá stelpunum

Keflavík vann sinn fyrsta leik í 1. deild kvenna í sumar þegar liðið vann BÍ/Bolungarvík á útivelli á laugardaginn.  Það var Marín Rún Guðmundsdóttir sem gerði eina mark leiksins í seinni hálfleik.  Fyrir leikinn voru stelpurnar með eitt stig í riðlinum en bættu þarna þremur stigum við.  Liðið hefur þó leikið prýðilega í flestum leikjum sumarsins þó að stigin hafi látið á sér standa.

Næsti leikur hjá stelpunum verður gegn Grindavík næsta miðvikudaginn.  Sá leikur verður á Nettó-vellinum og hefst kl. 19:00.