Fréttir

Knattspyrna | 22. ágúst 2005

Góð frammistaða 6. flokks

Piltarnir í A-liði 6. flokks Keflavíkur stóðu sig mjög vel í úrslitakeppni Pollamóts KSÍ sem fram fór á Fylkisvelli á helginni.  Strákarnir áunnu sér þátttökurétt í úrslitunum með því að vinna sinn riðil, sem leikinn var fyrr í sumar á ÍR-vellinum, með fullu húsi stiga.  Í úrslitakeppninni var leikið í tveimur fjögurra liða riðlum og voru leikir Keflvíkinga sem hér segir:
Breiðablik 2 - Keflavík: 1-4 (Elías Már Ómarsson 4 mörk)
Fylkir - Keflavík: 3-0
Grindavík - Keflavík: 0-4 (Samúel Kári Friðjónsson 2, Ívar Gauti Guðlaugsson og Axel Pálmi Snorrason)

Keflavík lenti í 2. sæti í sínum riðli og lék því gegn ÍR í leik um 3. sætið í mótinu.  Piltarnir áttu mjög góðan leik og unnu sannfærandi sigur 5-3.  Elías Már Ómarsson var í miklum ham i þessum leik og gerði 4 mörk, hvert öðru glæsilegra, Axel Pálmi Snorrason gerði 1 mark.

Piltarnir eiga hrós skilið fyrir stórgóða frammistöðu, sigruðu í sex leikjum af sjö í mótinu, töpuðu einungis gegn Fylkispiltum sem stóðu svo uppi sem sigurvegarar.  Til hamingju með 3. sætið strákar.  ÁFRAM KEFLAVÍK!!

Myndir: Herborg Valgeirsdóttir


Á myndinni er A-lið 6. flokks sem náði 3. sæti á Íslandsmótinu um helgina. 

Efri röð frá vinstri: Sigmundur Árni Guðnason, Ási Skagfjörð Þórhallsson, Ívar Gauti Guðlaugsson,
Elías Már Ómarsson, Samúel Kári Friðjónsson og Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari. 

Neðri röð frá vinstri: Axel Pálmi Snorrason, Tómas Orri Grétarsson,
Björn Elvar Þorleifsson (fyrirliði), Eyþór Guðjónsson og Ólafur Ingvi Hansson.