Góðir gestir hjá strákunum
Fyrir leikinn gegn Fylki kom hópur frá NES, Íþróttafélagi fatlaðra, og heilsaði upp á strákana í Keflavíkurliðinu. Þar var spáð í spilin og að sjálfsögðu voru allir vissir um gott gengi Keflavíkur. Íþróttafólkið í Nes er meðal dyggustu stuðningsmanna Keflavíkurliðsins og það var strákunum því sönn ánægja að hitta þennan góða hóp og ræða málin. Við vitum að við getum áfram treyst á stuðning frá NES-urum og óskum þeim góðs gengis við æfingar og keppni í vetur.
Myndir: Eygló Eyjólfsdóttir