Fréttir

Knattspyrna | 22. júní 2011

Góður bikarsigur á Ásvöllum

Keflavík er komið í 8 liða úrslit Valitor-bikarsins eftir 3-1 útisigur gegn Haukum í 16 liða úrslitunum.  Það var Guðmundur Steinarsson sem kom Keflavík yfir með skalla og Andri Steinn Birgisson bætti öðru marki við, einnig með skalla.  Hilmar Trausti Arnarsson minnkaði muninn fyrir Hauka með þriðja skallamarki leiksins en það var síðan Jóhann Birnir Guðmundsson sem gerði út um leikinn marki fimmtán mínútum fyrir leikslok.

Búið er að draga í 8 liða úrslitum og fengu okkar menn útileik gegn KR eða FH sem eiga eftir að leika í 16 liða úrslitunum.

Næsti leikur er útileikur gegn Breiðablik mánudaginn 27. júní kl. 19:15.

  • Leikurinn var þriðji bikarleikur Keflavíkur og Hauka og hefur þeim öllum lokið með sigri Keflavíkur.  Fyrri leikirnir fóru fram árin 1990 og 1992.
          
  • Frans Elvarsson lék sinn fyrsta leik fyrir Keflavík þegar hann kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik.  Frans hefur leikið nokkra leiki sem lánsmaður með Njarðvík í sumar.
        
  • Guðmundur Steinarsson skoraði sitt 19. bikarmark í leiknum og er orðinn næst markahæsti leikmaður Keflavíkur í bikarnum frá upphafi.  Kjartan Einarsson skoraði á sínum tíma 20 mörk í bikarkeppninni og næstir koma Óli Þór Magnússon og Ragnar Margeirsson með 18 mörk.
     
  • Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði sitt annað bikarmark í sumar og er kominn með 7 mörk í bikarnum fyrir Keflavík.  Hann er nú í 10.-12. sæti yfir markahæstu leikmenn Keflavíkur frá upphafi ásamt Gesti Gylfasyni og Marco Tanasic.
     
  • Andri Steinn Birgisson skoraði sitt fyrsta bikarmark fyrir Keflavík.
     

Fótbolti.net
Hilmar Geir Eiðsson mætti á sinn gamla heimavöll í kvöld þegar hann og samherjar hans í Keflavík mættu Haukum í 16-liða úrslitum Valitors-bikarsins. Keflvíkingar fóru með sigur af hólmi 3-1 en Hilmar Geir var tekinn útaf um miðjan fyrri hálfleikinn, en hann náði ekki að sýna sitt rétta andlit í leiknum í kvöld.

,,Þetta var mjög skrýtin tilfinning, en það var gaman að spila á móti strákunum og láta aðeins sparka í sig og tækla en það var mikilvægt að vinna hinsvegar leikinn.

,,Við héldum boltanum þokkalega vel, þeir leyfðu okkur aðeins að vera með boltann, það er síðan gott að fá fyrsta markið og annað markið en þeir skora síðan þriðja markið svo þeir hleyptu smá spennu í þetta þá," sagði Hilmar Geir, en Haukarnir sóttu síðan meira í byrjun seinni hálfleik og áttu nokkrar ágætis tilraunir sem rötuðu ekki í netið, en Hilmar Geir fannst Haukararnir samt aldrei neitt líklegir, ,,Þegar Hilmar Trausti er þeirra helsta sóknarvopn þá getur ekki verið að þeir séu að fara skora fleiri mörk," sagði Hilmar Geir að lokum.

Fréttablaðið / Vísir
Það voru helst föst leikatriði sem sköpuðu usla við mark Hauka en Keflavík vann fyrir sigrinum með mörkum sínum í upphafi leiks og gera það sem þeir gera best, halda forystu með þéttum leik þar sem leikmenn eru yfirvegaðir í sínum aðgerðum og takmarka möguleika andstæðinganna við mark sitt.

Haukar geta engu að síður verið ánægðir með margt í sínum leik. Liðið var síst lakari aðilinn en það er erfitt að sigra þegar lið lenda 2-0 undir í upphafi leiks.

Morgunblaðið / Mbl.is
Keflvíkingar hafa eflaust verið orðnir ansi óþreyjufullir eftir alvörufótboltaleik þegar þeir mættu Haukum að Ásvöllum í gær og slógu þá út úr Valitor-bikarnum með 3:1 sigri. Þökk sé frestun á leik við Val í úrvalsdeildinni og hléinu sem gert var vegna þátttöku U21-landsliðsins á EM í Danmörku hafa Keflvíkingar ekki spilað leik í heila 20 daga sem hlýtur að teljast ansi óvenjulegt um hásumar.

Fríið hafa Keflvíkingar greinilega nýtt sér ágætlega því þeir voru enga stund »upp úr startblokkunum«, svo við notum frjálsíþróttamál, í blíðviðrinu í gær. Tuttugu mínútum eftir að leikurinn var hafinn höfðu þeir skorað tvö mörk og þessi byrjun var það sem gerði útslagið. Sú list að byrja leiki af fullum krafti er ekki öllum gefin og stundum virðast leikmenn hreinlega þurfa að lenda í slæmri tæklingu eða fá á sig mark til að hrökkva í gang. Hafi menn þess háttar hugarfar er líklegra að þeir spili með miðlungsliði í 1. deild eins og Haukum, heldur en stöðugu úrvalsdeildarliði á borð við Keflavík.

Víkurfréttir
Keflvíkingar byrjuðu leikinn af krafti og Guðmundur Steinarsson kom þeim yfir strax á fjórðu mínútu með skalla eftir undirbúning Magnúsar Þóris Matthíassonar.

Eftir hornspyrnu Guðmundar Steinarssonar skoraði Andri Steinn Birgisson síðan annað skallamark á 21. mínútu fyrir Keflvíkinga en Haukar náðu að minnka muninn fyrir leikhlé. Það var svo Jóhann Birnir Guðmundsson sem gerði út um leikinn korteri fyrir leikslok með laglegu marki.
Myndasafn Víkurfrétta frá leiknum

 
Valitor-bikar karla, Ásvellir, 20. júní 2011
Haukar 1
(Hilmar Trausti Arnarsson 33.)
Keflavík 3 (Guðmundur Steinarsson 4., Andri Steinn Birgisson 21., Jóhann Birnir Guðmundsson 75.)

Keflavík: Ómar Jóhannsson, Guðjón Árni Antoníusson, Brynjar Örn Guðmundsson, Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Hilmar Geir Eiðsson (Magnús Sverrir Þorsteinsson 56.), Jóhann Birnir Guðmundsson (Arnór Ingvi Traustason 89.), Einar Orri Einarsson, Andri Steinn Birgisson (Frans Elvarsson 66.), Magnús Þórir Matthíasson, Guðmundur Steinarsson. 
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Ásgrímur Rúnarsson, Viktor Smári Hafsteinsson, Bojan Stefán Ljubicic.
Gul spjöld: Hilmar Geir Eiðsson (38.), Andri Steinn Birgisson (51.), Guðmundur Steinarsson (90.)

Dómari: Þorvaldur Árnason.
Aðstoðardómarar: Oddbergur Eiríksson og Sverrir Gunnar Pálmason.
Eftirlitsdómari: Þórður Georg Lárusson.





Jóhann um það bil að gulltryggja sigurinn með þriðja markinu.
(Mynd frá Víkurfréttum)