Fréttir

Knattspyrna | 22. mars 2004

Góður sigur gegn ÍBV

Keflavík vann lið ÍBV 2-1 í Deildarbikarnum í Reykjaneshöllinni í gær í ágætum leik.  Það var Hörður Sveinsson sem skoraði fyrsta mark leiksins eftir um fimm mínútna leik.  Stefán sendi þá glæsilega sendingu inn fyrir vörn Eyjamanna, Hörður slapp í gegn og sendi boltann af öryggi undir Birki og í netið.  Eftir um hálftíma leik bætti Magnús Þorsteinsson öðru markinu við.  Hörður fékk þá aftur sendingu inn fyrir vörnina, lék upp að endamörkum og gaf fyrir á Magnús sem skoraði með föstu skoti í fjærhornið.  Í upphafi seinni hálfleiks minnkaði Tryggvi Bjarnason muninn fyrir ÍBV og þrátt fyrir ágæt færi á báða bóga urðu mörkin ekki fleiri.

Okkar menn léku áægtlega í leiknum, þeir héldu boltanum vel og hann gekk vel milli manna frá öftustu línu.  Stundum vantaði hins vegar meira bit í leik liðsins þegar komið var framar á völlinn.  Eyjamenn áttu nokkur hættuleg færi en Magnús varði nokkrum sinnum mjög vel og var mjög öruggur í markinu.

Keflavík (4-4-2): Magnús Þormar - Guðjón Antoníusson (Hjörtur Fjeldsted 77.), Stefán Gíslason (Brynjar Örn Guðmundsson 46.), Haraldur Guðmundsson, Ólafur Ívar Jónsson - Hólmar Örn Rúnarsson, Zoran Ljubicic Jónas Guðni Sævarsson, Scott Ramsay (Ingvi Rafn Guðmundsson 46.) - Hörður Sveinsson (Þórarinn Kristjánsson 46.), Magnús Þorsteinsson (Hafsteinn Rúnarsson 69.)