Fréttir

Knattspyrna | 7. apríl 2011

Goran og Adam með Keflavík í sumar

Þeir Goran Jovanovski og Adam Larsson hafa samið við Keflavík um að leika með liðinu í sumar.  Þeir félagar eru báðir varnarmenn, Goran er þrítugur og kemur frá Makedóníu en Adam er 21 árs Svíi.  Goran lék síðast með FC Skopje en Adam kemur hingað að láni frá Mjällby AIF.  Við bjóðum þá velkomna í hópinn.


Goran og Adam á æfingu með Keflavík.