Fréttir

Knattspyrna | 13. apríl 2011

Gott gengi 2. flokks

Piltarnir í 2. flokki hafa verið að gera góða hlut í vor og ekki tapað leik á þessu ári.  Undirbúningur flokksins fyrir sumarið hefur falist í þátttöku í Faxaflóamóti 2. flokks og þar hefur liðið staðið sig frábærlega.  Strákarnir eru búnir að leika 11 leiki og hafa unnið 10 þeirra en gert eitt jafntefli.  Markatala liðsins er 50-9.  Fjölmargir leikmenn hafa komið við sögu í leikjunum sem sýnir vel þann fjölda efnilegra leikmanna sem eru að koma upp hjá Keflavík.  Margir þeirra hafa reyndar þegar leikið með meistaraflokki okkar og aðrir eru að banka á dyrnar.  Það er ljóst að nánasta framtíð er björt hjá félaginu og við óskum strákunum og þjálfurunum Zoran Daníel og Hauki góðs gengis í sumar.


Zoran þjálfari og nokkrir leikmanna 2. flokks sem skrifuðu undir samninga í vetur.
(Mynd: Jón Örvar)