Grannaslagur hjá stelpunum á mánudaginn
Fyrsti heimaleikur tímabilsins hjá stelpunum er grannaslagur gegn Grindavík. Leikurinn fer fram á Nettóvellinum í Keflavík, mánudaginn 30. maí, kl. 20:00.
Hvetjum fólk til þess að mæta á völlinn og sjá skemmtilegan leik tveggja góðra liða. Bæði lið hófu Íslandsmótið vel, Keflavík með 2 - 1 sigri á Álftanesi og Grindavík lagði Gróttu að velli 9 - 0.