Gregor á heimleið
Nú er orðið ljóst að okkar ágæti félagi Gregor Mohar getur ekki leikið meira á þessi keppnistímabili vegna meiðsla sem hafa verið að hrjá hann. Hann er því á heimleið og heldur af landi brott í dag. Gregor hefur leikið mjög vel í sumar og ljóst að hans verður sárt saknað. Knattspyrnudeildin mun áfram fylgjast með honum með það í huga að hann leiki með Keflavík síðar. Við þökkum Gregor hans framlag í sumar og óskum honum góðs gengis.