Fréttir

Knattspyrna | 30. nóvember 2011

Grétar Atli til Keflavíkur

Grétar Atli Grétarsson hefur gengið til liðs við Keflavík.  Grétar er 23 ára gamall og kemur frá Stjörnunni en hann hefur einnig leikið með Haukum.  Grétar Atli hefur leikið stöðu hægri bakvarðar og á að baki 54 deildar- og bikarleiki og hefur skorað í þeim fjögur mörk.

Þess má geta að faðir Grétars Atla er Grétar Magnússon sem lék um árabil með Keflavík og var einn lykilmanna gullaldarliðsins.  Grétar lék á sínum tíma eina 118 leiki fyrir Keflavík í efstu deild og skoraði 16 mörk.  Hann kom við sögu í öllum Íslandsmeistaraliðum Keflavíkur og lék m.a. fyrsta Evrópuleik félagsins.

Við bjóðum Grétar Atla velkominn í hópinn.


Grétar Atli kominn í Keflavíkurbúninginn.


Grétar Atli og Grétar eldri.