Grill fyrir heimaleiki
Það verður grill fyrir heimaleiki okkar í Pepsi-deildinni það sem eftir er sumars. Boðið verður upp á hamborgara og Coke á 1000 kr. í félagsheimilinu við Sunnubraut frá kl. 18:00. Nú þarf enginn að elda heima, bara mæta á leik og skella í sig grilluðum borgara! Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta og spjalla saman fyrir leik og styðja um leið knattspyrnuna í Keflavík.
Myndin með fréttinni er fengin að láni hjá Víkurfréttum.