Fréttir

Grill fyrir leik - Mætum öll -Stöndum saman
Knattspyrna | 27. ágúst 2012

Grill fyrir leik - Mætum öll -Stöndum saman

Fyrir leik Keflavíkur og Vals mun kvennaráð grilla hamborgara frá kl. 17:00 í félagsheimili Keflavíkur.  Við Keflvíkingar eigum frábæra aðstöðu á efri hæð íþróttahússins við Sunnubraut og lítið mál að tölta þangað upp og allir velkomnir.  Þaðan er frábært útsýni yfir grænan og flottan Nettóvöllinn og fátt er skemmtilegra í aðdraganda leiks en spá í leikinn framundan með öðrum Keflvíkingum.  Frábært að fylgjast með upphitun sinna manna og splæsa á sig borgara í leiðinni.  

Eins og margoft hefur komið fram hefur gengi Keflavíkurliðsins verið betra á útivöllum en á heimavelli í sumar.  Enn er tími til að breyta því en það er ljóst að það tekst aðeins með sameiginlegu átaki stuðningsmanna og leikmanna.  Við hvetjum því stuðningsmenn Keflavíkur til að fjölmenna á leikinn og styðja strákana.  Stöndum saman og þá verðum við í skemmtilegri baráttu allt til loka móts.