Fréttir

Grill og tónlist fyrir leik - Byrjum kl. 19:00
Knattspyrna | 14. júní 2014

Grill og tónlist fyrir leik - Byrjum kl. 19:00

Það verður mikil stemmning í félagsheimilinu okkar fyrir leikinn á sunnudaginn.  Við byrjum að grilla kl. 19:00 og um sama leyti byrja þeir félagar Valdimar og Björgvin að spila og koma koma okkar fólki í rétta gírinn fyrir leik.  Kristján þjálfari mætir eins og venjulega og spjallar við gesti.

Stjarnan er ósigruð í deildinni í sumar og ætlunin er auðvitað að breyta því og taka um leið annað sætið í deildinni.  Til þess þarf ykkar stuðning og við hvetjum því alla til að mæta á leikinn.

Áfram Keflavík!