Fréttir

Grindavík - Keflavík á laugardag kl. 14:00
Knattspyrna | 17. maí 2013

Grindavík - Keflavík á laugardag kl. 14:00

Laugardaginn 18. maí hefst keppnistímabilið hjá kvennaliði Keflavíkur og fyrsta verkefnið er leikur í 1. umferð Borgunarbikarsins.  Andstæðingarnir eru nágrannar okkar í Grindavík og leikurinn verður á Grindavíkurvelli á laugardag kl. 14:00.  Dómari leiksins verður Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson og aðstoðardómarar hans þau Bergur Þór Steingrímsson og Ellen Elísabet Bergsdóttir.

Þessi lið hafa einu sinni áður mæst í bikarnum en það var árið 2005.  Keflavík vann 8-1 sigur í 1. umferðinni en Keflavík var þá með öflugt lið sem lék þá í efstu deild en Grindvíkingar léku ekki í deildarkeppninni það árið.