Fréttir

Knattspyrna | 14. júní 2008

Grindavík - Keflavík á sunnudag kl. 16:00

Grindavík og Keflavík leika í 7. umferð Landsbankadeildarinnar sunnudaginn 15. júní.  Leikurinn fer fram á Grindavíkurvelli og hefst kl. 16:00.  Fyrir leikinn eru okkar menn í 2. sæti deildarinnar með 15 stig, aðeins einu stigi á eftir toppliði FH.  Grindvíkingar eru hins vegar í neðri hlutanum með 6 stig.  Bæði lið þurfa því á stigunum að halda en það er auðvitað alltaf hart tekist á þegar þessi nágrannalið mætast.  Dómari leiksins verður Einar Örn Daníelsson og aðstoðardómarar hans Einar K. Guðmundsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson.  Varadómari er Hans Kristján Scheving og Ingi Jónsson er eftirlitsmaður KSÍ.  Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og þeir sem eiga alls ekki heimangengt þurfa því ekki að missa af neinu.

Keflavík og Grindavík hafa mæst 22 sinnum efstu deild, fyrst árið 1995.  Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 8 leiki, Grindavík 9 en fimm sinnum hefur orðið jafntefli.  Markatalan er 33-24 fyrir Grindavík.  Stærsti sigur Grindavíkur var 4-0 sigur á Grindavíkurvelli árið 1996 en stærstu sigrar Keflavíkur er 3-0 heimasigur árið 1998 og 4-1 sigur í Grindavík árið 2002.  Mesti markaleikur liðanna kom árið 2004 þegar Grindavík vann 4-3.  Fjórir leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Grindavík í efstu deild.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað sex mörk, Þórarinn Kristjánsson fimm og þeir Hörður Sveinsson og Hólmar Örn Rúnarsson eitt mark hvor.

Liðin hafa aðeins einu sinni mæst í bikarkeppninni en það var árið 1991.  Keflavík vann þá á Keflavíkurvelli þegar Óli Þór Magnússon skoraði eina mark leiksins.

Keflavík og Grindavík léku 6 leiki í B-deildinni á árunum 1990-1992.  Keflavík vann fjóra leikjanna en Grindavík einn og jafntefli varð í einum leik.  Markatalan í leikjunum er 13-9 fyrir Keflavík.

Liðin léku síðast í Landsbankadeildinni árið 2006.  Liðin gerðu 1-1 á Grindavíkurvelli; Jóhann Þórhallsson kom Grindavík yfir en Guðmundur Steinarsson jafnaði.  Keflavík vann heimaleikinn síðan 2-0 en þar skoruðu Þórarinn Kristjánsson og Stefán Örn Arnarson.

Það hefur verið þó nokkur samgangur milli Keflavíkur og Grindavíkur í gegnum árin enda ekki langt að fara.  Magnús Þorsteinsson, leikmaður Keflavíkur, lék t.d. eitt tímabil með Grindavík og Eysteinn Hauksson lék um árabil með Keflavík en leikur nú með Grindavík.  Þess má geta að Eysteinn skoraði einmitt fyrsta mark Keflavíkur gegn Grindavík í efstu deild.  Í gegnum árin hafa m.a. Kristinn Jóhannsson, Hjálmar Hallgrímsson, Þorsteinn Bjarnason, Scott Ramsay og Zoran Ljubicic leikið með báðum félögunum.  Þá má ekki gleyma því að Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, þjálfaði Keflavík 2003 og 2004 og gerði liðið m.a. að bikarmeisturum.

Úrslit í leikjum Grindavíkur og Keflavíkur á heimavelli Grindavíkur hafa orðið þessi:

2006

Grindavík - Keflavík

1-1 Guðmundur Steinarsson
2005

Grindavík - Keflavík

2-1 Guðmundur Steinarsson
2004

Grindavík - Keflavík

3-2 Sreten Djurovic
Zoran Ljubicic
     2002    

Grindavík - Keflavík

1-4   Guðmundur Steinarsson 2
Þórarinn Kristjánsson 2
  2001

Grindavík - Keflavík

1-2   Haukur Ingi Guðnason
Þórarinn Kristjánsson
  2000

Grindavík - Keflavík

0-0  
1999

Grindavík - Keflavík

2-0
  1998

Grindavík - Keflavík

2-1   Guðmundur Steinarsson
  1997

Grindavík - Keflavík

2-0  
  1996

Grindavík - Keflavík

4-0  
1995

Grindavík - Keflavík

1-2 Eysteinn Hauksson
Óli Þór Magnússon