Fréttir

Knattspyrna | 27. júní 2009

Grindavík - Keflavík á sunnudag kl. 20:00

Grindavík og Keflavík leika í 9. umferð Pepsi-deildarinnar sunnudaginn 28. júní.  Leikurinn fer fram á Grindavíkurvelli og hefst kl. 20:00.  Fyrir leikinn eru okkar menn í 3.-4. sæti deildarinnar með 17 stig, sjö stigum á eftir toppliði FH.  Grindvíkingar eru hins vegar í neðri hlutanum með 7 stig.  Bæði lið þurfa auðvitað á stigunum að halda en það er alltaf hart tekist á þegar þessi nágrannalið mætast.  Dómari leiksins verður Garðar Örn Hinriksson og aðstoðardómarar hans Sigurður Óli Þórleifsson og Áskell Þór Gíslason.  Varadómari er Gunnar Sverrir Gunnarsson og Sigurður Hannesson er eftirlitsmaður KSÍ.  Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og þeir sem eiga alls ekki heimangengt þurfa því ekki að missa af neinu.

Keflavík og Grindavík hafa mæst 24 sinnum efstu deild, fyrst árið 1995.  Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 10 leiki, Grindavík 9 en fimm sinnum hefur orðið jafntefli.  Markatalan er 33-28 fyrir Grindavík.  Stærsti sigur Grindavíkur var 4-0 sigur á Grindavíkurvelli árið 1996 en stærstu sigrar Keflavíkur er 3-0 heimasigrar árin 1998 og 2008 og 4-1 sigur í Grindavík árið 2002.  Mesti markaleikur liðanna kom árið 2004 þegar Grindavík vann 4-3.  Sex leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Grindavík í efstu deild.  Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú mörk, Haukur Ingi Guðnason tvö og þeir Magnús Þorsteinsson, Stefán Örn Arnarson, Hörður Sveinsson og Hólmar Örn Rúnarsson eitt mark hver.

Liðin hafa aðeins einu sinni mæst í bikarkeppninni en það var árið 1991.  Keflavík vann þá á Keflavíkurvelli þegar Óli Þór Magnússon skoraði eina mark leiksins.

Keflavík og Grindavík léku 6 leiki í B-deildinni á árunum 1990-1992.  Keflavík vann fjóra leikjanna en Grindavík einn og jafntefli varð í einum leik.  Markatalan í leikjunum er 13-9 fyrir Keflavík.

Liðin léku að sjálfsögðu tvo leiki í úrvalsdeildinni í fyrra.  Keflavík vann fyrri leikinn í Grindavík en eina mark þess leiks var sjálfsmark Grindvíkinga.  Keflavík vann heimaleikinn síðan 3-0 en þar skoruðu Jóhann B. Guðmundsson, Guðmundur Steinarsson og Magnús Þorsteinsson.

Það hefur verið þó nokkur samgangur milli Keflavíkur og Grindavíkur í gegnum árin enda ekki langt að fara.  Magnús Þorsteinsson, leikmaður Keflavíkur, lék t.d. eitt tímabil með Grindavík og í liði Grindavíkur eru nú fjórir fyrrverandi leikmenn okkar, þeir Þórarinn Kristjánsson, Scott Ramsay, Eysteinn Hauksson og Óttar Steinn Magnússon.  Þess má geta að Eysteinn skoraði einmitt fyrsta mark Keflavíkur gegn Grindavík í efstu deild.  Í gegnum árin hafa m.a. Kristinn Jóhannsson, Ólafur Ingólfsson, Hjálmar Hallgrímsson, Þorsteinn Bjarnason og Zoran Ljubicic leikið með báðum félögunum.  Þá má ekki gleyma því að Milan Stefán Jankovic, fyrrverandi þjálfari og nú aðstoðarþjálfari Grindavíkur, þjálfaði Keflavík 2003 og 2004 og gerði liðið m.a. að bikarmeisturum.

Úrslit í leikjum Grindavíkur og Keflavíkur á heimavelli Grindavíkur hafa orðið þessi:

2008

Grindavík - Keflavík

0-1 Sjálfsmark
2006

Grindavík - Keflavík

1-1 Guðmundur Steinarsson
2005

Grindavík - Keflavík

2-1 Guðmundur Steinarsson
2004

Grindavík - Keflavík

3-2 Sreten Djurovic
Zoran Ljubicic
     2002    

Grindavík - Keflavík

1-4   Guðmundur Steinarsson 2
Þórarinn Kristjánsson 2
  2001

Grindavík - Keflavík

1-2   Haukur Ingi Guðnason
Þórarinn Kristjánsson
  2000

Grindavík - Keflavík

0-0  
1999

Grindavík - Keflavík

2-0
  1998

Grindavík - Keflavík

2-1   Guðmundur Steinarsson
  1997

Grindavík - Keflavík

2-0  
  1996

Grindavík - Keflavík

4-0  
1995

Grindavík - Keflavík

1-2 Eysteinn Hauksson
Óli Þór Magnússon