Grindavíkurleikurinn hjá Sportmönnum
Kæru Sportmenn.
Á sunnudaginn er heimaleikur gegn nágrönnum okkar, Grindvíkingum. Leikurinn hefst kl. 18.00 og við hittumst því í íþróttavallarhúsinu kl. 17.00 til upphitunar. Við fáum góða gesti frá Grindavík í heimsókn sem munu ávarpa okkur. Kristján þjálfari mætir að venju en að öðru leyti er orðið laust.
Minnum á kr. 500:- í baukinn fyrir veitingar.
Mætum vel og stundvíslega.
Kveðja,
stjórn Sportmanna.