Guðmundur Steinarsson er kominn með leikheimild með Keflavík og getur því farið að leika með liðinu. Eins og flestir vita hefur kappinn dvalist í Danaveldi í vetur en er væntanlegur heim ásamt fjölskyldu sinn nú á föstudaginn. Við bjóðum Guðmund að sjálfsögðu velkominn aftur í slaginn með Keflavík og vonumst til að sjá hann sem fyrst á knattspyrnuvellinum.