Fréttir

Knattspyrna | 15. júní 2007

Guðný valin í landsliðshópinn

Guðný Petrína Þórðardóttir hefur verið valin í 18 manna landsliðshóp Íslands sem leikur gegn Frakklandi 16. júní n.k.  Leikurinn verður háður á Laugardagsvelli og hefst kl.14:00.  Guðný lék sinn fyrsta landsleik gegn Englendingum 17. maí s.l. og var sá leikur háður ytra.  Sigurður Ragnar Eyjólfsson valdi 22 manna æfingarhóp fyrir fyrir þá tvo landsleiki sem framundan eru við Frakkland og Serbíu. Leikurinn gegn Serbum verður háður 21. júní n.k.

Landsliðshópurinn:

Markverðir:
Þóra B. Helgadóttir, Anderlecht
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Val

Aðrir leikmenn:
Guðný P. Þórðardóttir, Keflavík
Ásthildur Helgadóttir, LdB Malmö
Katrín Jónsdóttir, Val
Edda Garðarsdóttir, KR
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Breiðabliki
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val
Dóra María Lárusdóttir, Val
Hólmfríður Magnúsdóttir, KR
Dóra Stefánsdóttir, LdB Malmö
Erla Steina Arnardóttir, Jersey Sky Blue
Ásta Árnadóttir, Val
Greta Mjöll Samúelsdóttir, Breiðabliki
Ólína G. Viðarsdóttir, KR
Guðný B. Óðinsdóttir, Val
Katrín Ómarsdóttir, KR
Sif Atladóttir, Val