Fréttir

Knattspyrna | 7. nóvember 2005

Gunnar H. Kristinsson rær á önnur mið

Gunnar H. Kristinsson hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við Keflavík.  Gunnar gekk til liðs við Keflavík frá ÍR í vetur fyrir orð Guðjóns Þórðarsonar þáverandi þjálfara Keflavíkur.  Gunnar leik nokkra leiki með Keflavík og skoraði m.a. mark í Evrópuleik gegn FC Etzella frá Luxemborg í 2-0 sigri Keflvíkinga á Laugardalsvelli 28. júlí.  Knattspyrnudeild Keflavíkur vill þakka Gunnari gott samstarf sem hvergi féll skuggi á.  Létt og skemmtileg lund Gunnars efldi liðsandann og stemmninguna í hópnum frá upphafi.  Leikmenn, stjórn og þjáfarar óska Gunnari velfarnaðar á nýjum slóðum.  ási


Gunnar skorar eftirminnilegt mark gegn FC Etzella á Laugardalsvellinum.
(Mynd: Eygló Eyjólfsdóttir)