Gunnar hættir hjá Keflavík
Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Keflavíkur.
Gunnar Oddsson mun stíga frá sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla að eigin ósk. Gunnar hefur starfað hjá Keflavík sem aðstoðarþjálfari síðan um miðjan júlí 2011. Gunnar skilur við Keflavík í sátt og telur eðlilegt að með nýjum þjálfara komi nýr aðstoðarmaður. Knattspyrnudeildin þakkar Gunnari fyrir hans framlag til Keflavíkur og óskar honum góðs gengi í því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.
Fyrir hönd Knattspyrnudeildar,
Þorsteinn Magnússon formaður.