Gunnar Magnús ráðinn aðstoðarþjálfari
Gunnar Magnús Jónsson verður aðstoðarþjálfari Kristjáns Guðmundssonar hjá meistaraflokki Keflavíkur en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Keflavík í dag. Gunnar er Keflvíkingur í húð og hár, hann hefur mikla reynslu af þjálfun og hefur þjálfað í nánast öllum flokkum hjá Keflavík í gegnum tíðina. Undanfarin þrjú ár þjálfaði Gunnar lið Njarðvíkur.
Knattspyrnudeildin er ánægð með að fá Gunnar aftur til Keflavíkur og bíður hann velkominn til starfa.