Fréttir

Knattspyrna | 13. október 2011

Gunnar verður aðstoðarþjálfari

Gunnar Oddsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla til næstu tveggja ára.  Gunnar er auðvitað Keflvíkingur í húð og hár en hann lék á sínum tíma 237 leiki fyrir Keflavík í öllum keppnum.  Gunnar þjálfaði Keflavík ásamt Sigurði Björgvinssyni árin 1997-1999 en þeir gerðu liðið að bikarmeisturum árið 1997.  Gunnar stjórnaði liðinu einnig í nokkrum leikjum árið 2000 ásamt Þorsteini Bjarnasyni og hann var Willum Þór til aðstoðar nú í sumar.

Það er ánægjulegt að búið sé að ganga frá því að þeir Zoran og Gunnar stjórni liðinu en stjórn Knattspyrnudeildar lagði að þessu sinni mikla áherslu á að fá Keflvíkinga til að starfa fyrir félagið.  Við bjóðum þá félaga velkomna til starfa.


Gunnar Oddsson.
(Mynd frá
Víkurfréttum)