Gunnlaugur þjálfar kvennaliðið
Gunnlaugur Kárason hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna. Gunnlaugur er heimamaður og öllum hnútum kunnugur hjá Keflavík. Hann hefur hefur áður þjálfað meistaraflokk kvenna en það var árið 2006 í Landsbankadeildinni. Gunnlaugur er með UEFA A-þjálfararéttindi og er íþróttakennari að mennt.
Knattspyrnudeildin býður Gunnlaug velkominn til starfa hjá Keflavík.