Hafsteinn Guðmundsson látinn
Sunnudaginn 29. apríl andaðist Hafsteinn Guðmundsson, fyrrverandi formaður og þjálfari ÍBK. Hafsteinn var íþróttakennari á Suðurnesjum í 43 ár og forstöðumaður Sundhallar Keflavíkur og Sundmiðstöðvar.
Hafsteinn var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu, heiðurskrossi ÍSÍ, heiðurskrossi KSÍ, gullmerki ÍBK, heiðursgullmerki Keflavíkur, gullmerki Knattspyrnudeildar Keflavíkur og hann var heiðursfélagi UMFK. Hafsteinn lék á sínum tíma með landsliði Íslands, meistaraflokki Vals í knattspyrnu og síðar með ÍBK. Hafsteinn var formaður ÍBK frá stofnun 1956 og til 1975, formaður UMFK 1978-1981, í stjórn KSÍ 1968-1972, í landsliðsnefnd KSÍ og síðan landsliðseinvaldur 1969-1973.
Knattspyrnudeild vill sýna þessum mikla leiðtoga og höfðingja virðingu sína og mun meistaraflokkur karla spila með sorgarbönd í leiknum gegn Fylki á sunnudaginn.
Knattspyrnudeildin sendir eftirlifandi eiginkonu Hafsteins, Jóhönnu Guðjónsdóttur, og börnum þeirra Hafdísi, Hauki, Svölu, Brynju og Sigrúnu innilegar samúðarkveðjur.
f.h. Knattspyrnudeildar Keflavíkur
Þorsteinn Magnússon,
formaður