Fréttir

Halldór Kristinn í Keflavík
Knattspyrna | 26. janúar 2013

Halldór Kristinn í Keflavík

Halldór Kristinn Halldórsson er genginn til liðs við Keflavík og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Halldór Kristinn er 24 ára miðvörður sem hefur leikið með Val undanfarin tvö ár.  Hann kemur úr Leikni í Reykjavík þar sem hann lék áður en hann gekk til liðs við Valsmenn.  Halldór Kristinn á að baki 40 leiki fyrir Val í efstu deild og hefur alls leikið 178 leiki í deild og bikar og skorað fimm mörk.  Auk þess lék hann á sínum tíma með U-17 og U-19 ára landsliðið Íslands.

Við bjóðum Halldór Kristin velkominn í Keflavík.