Haraldur Freyr áfram með Keflavík
Fyrirliðinn Haraldur Freyr Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við Keflavík til tveggja ára. Hann verður því hjá Keflavík til loka ársins 2015. Það er mikill fengur fyrir liðið okkar að Haraldur verði áfram í okkar herbúðum enda er hann gríðarlega mikilvægur leikmaður, fyrirliði liðsins og leiðtogi.
Haraldur Freyr er 31 árs gamall og lék með öllum yngri flokkum Keflavíkur. Hann lék fyrst með meistaraflokki árið 1999 og á nú 147 deildarleiki að baki og hefur skorað í þeim 8 mörk Haraldur hefur einnig leikið 21 bikarleik og skorað fimm mörk og hann varð bikarmeistari með Keflavík árið 2004. Hann lék í Noregi og Kýpur á árunum 2005 til 2009 og aftur í Noregi seinni hluta sumarsins 2011. Haraldur hefur leikið með öllum landsliðum Íslands og á að baki tvo leiki með A-landsliðinu.