Fréttir

Knattspyrna | 1. júní 2011

Haraldur Freyr í landsliðshópinn

Haraldur Freyr Guðmundsson hefur verið kallaður inn í landsliðshóp Íslands fyrir leikinn gegn Danmörku á laugardaginn.  Hann kemur inn í hópinn í stað Ragnars Sigurðssonar sem dró sig út úr hópnum.  Haraldur lék tvo landsleiki á árunum 2005-2006 en hann hefur reyndar nokkrum sinnum verið í landsliðshópnum síðan.  Við óskum Halla og félögum hans góðs gengis í leiknum gegn Dönunum.