Haukar - Keflavík á laugardag kl. 16:00
Laugardaginn 28. ágúst leika Haukar og Keflavík í 18. umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn fer fram á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda og hefst kl. 16:00. Fyrir leikinn er Keflavík í 5.-6. sæti deildarinnar með 24 stig en Haukar eru í neðsta sætinu með 10 stig. Haukar hafa þó átt góða leiki og unnu góðan útisigur á toppliði Breiðabliks í síðustu umferð en það var fyrsti sigurleikur liðsins í sumar. Og ekki má gleyma að fyrri leik liðanna í sumar lauk með jafntefli. Dómari leiksins verður hinn heimsþekkti Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar þeir Einar Sigurðsson og Andri Vigfússon en eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Ingi Guðjónsson.
Það þarf ekki að eyða löngum tíma í að ræða fyrri leiki Keflavíkur og Hauka í efstu deild en þeir eru aðeins þrír. Tveir fyrstu voru leiknir árið 1979 og sá þriðji í sumar. Árið 1979 lauk fyrri leiknum með markalausu jafntefli á heimavelli Hauka á Hvaleyrarholti. Keflavík vann svo sinn heimaleik 4-1 þar sem Steinar Jóhannsson skoraði þrjú mörk og Ragnar Margeirsson eitt. Liðin léku svo á Njarðtaksvellinum í Njarðvík í 7. umferð Pepsi-deildarinnar í sumar. Sam Mantom kom Haukum yfir í leiknum en Brynjar Örn Guðmundsson jafnaði og þar við sat.
Liðin mættust 6 sinnum í næstefstu deild 1981, 1991 og 2003. Keflavík vann alla leikina og markatalan í B-deildinni er 24-2 fyrir Keflavík. Þrír leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur skoruðu gegn Haukum árið 2003, þeir Magnús Þorsteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson og Guðjón Antoníusson.
Liðin hafa mæst tvisvar sinnum í bikarkeppni KSÍ, árin 1990 og 1992. Keflavík vann báða leikina, samanlagt 7-0.
Það hefur ekki verið mikill samgangur milli félaganna tveggja í gegnum árin. Willum Þór Þórsson þjálfaði auðvitað Hauka fyrir nokkrum árum og Ómar Karl Sigurðsson lék með félaginu um árabil, m.a. undir stjórn Willums. Í Haukaliðinu nú er svo Guðmundur Viðar Mete sem er okkur Keflvíkingum að góðu kunnur og einnig Hilmar Trausti Arnarsson sem var í okkar herbúðum fyrir nokkrum árum.