Haukar - Keflavík á mánudag kl. 19:15
Mánudaginn 20. júní leika Haukar og Keflavík í 16 liða úrslitum Valitor-bikarsins. Leikurinn fer fram á Ásvöllum og hefst kl. 19:15. Keflavík vann Hött 5-0 í 32 liða úrslitum keppninnar en Haukar unnu þá KF 2-0 og höfðu áður unnið Gróttu með sömu markatölu. Dómari leiksins verður hinn geðþekki Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar þeir Oddbergur Eiríksson og Sverrir Gunnar Pálmason en eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Georg Lárusson.
Það þarf ekki að eyða löngum tíma í að ræða leiki Keflavíkur og Hauka í efstu deild en þeir eru aðeins fjórir. Tveir fyrstu voru leiknir árið 1979 og hinir tveir í fyrra. Árið 1979 lauk fyrri leiknum með markalausu jafntefli á heimavelli Hauka á Hvaleyrarholti. Keflavík vann svo sinn heimaleik 4-1 þar sem Steinar Jóhannsson skoraði þrjú mörk og Ragnar Margeirsson eitt. Liðin léku svo tvívegis síðasta sumar. Fyrri leikuirnn fór fram á Njarðtaksvellinum í Njarðvík og lauk með 1-1 jafntefli þar sem Brynjar Örn Guðmundsson skoraði fyrir Keflavík. Haukar unnu svo síðari leikinn 2-0 á Hlíðarenda.
Liðin mættust 6 sinnum í næstefstu deild 1981, 1991 og 2003. Keflavík vann alla leikina og markatalan í B-deildinni er 24-2 fyrir Keflavík. Tveir leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur skoruðu gegn Haukum árið 2003, þeir Magnús Þorsteinsson og Guðjón Antoníusson.
Keflavik og Haukar hafa tvisvar áður mæst í bikarkeppninni og fóru leikirnir báðir fram á heimavelli Hauka sem þá léku á Hvaleyraholti. Fyrri leikurinn var árið 1990 og lauk með 2-0 sigri Keflavíkur þar sem Óli Þór Magnússon og Marco Tanasic skoruðu fyrir Keflavík. Liðin mættust svo aftur árið 1992 og þá vann Keflavík 5-0. Óli Þór var aftur á skotskónum og skoraði þrennu en Kjartan Einarsson og Gunnar Magnús Jónsson skoruðu einnig í þeim leik.
Það hefur ekki verið mikill samgangur milli félaganna tveggja í gegnum árin. Willum Þór Þórsson þjálfaði auðvitað Hauka fyrir nokkrum árum, Hilmar Geir Eiðsson kom til Keflavíkur frá Haukum fyrir þetta tímabil og Ómar Karl Sigurðsson hefur leikið með báðum félögum. Í Haukaliðinu nú er svo Guðmundur Viðar Mete sem er okkur Keflvíkingum að góðu kunnur og einnig Hilmar Trausti Arnarsson sem var í okkar herbúðum fyrir nokkrum árum. Þá er Ísak Örn Þórðarson nú í láni hjá Haukunum frá Keflavík.