Fréttir

Knattspyrna | 2. nóvember 2011

Haukur þjálfar 2. flokk

Haukur Benediktsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. flokks karla næstu tvö ár en hann hefur þjálfað hjá Keflavík um árabil.  Hann hefur þjálfað yngri flokka Keflavíkur ásamt Zoran Daníel Ljubicic og var m.a. aðstoðarþjálfari hans hjá 2. flokki síðastliðin tvö ár.  Haukur tekur nú alfarið við þjálfun 2. flokks eftir að Zoran tók við meistaraflokki.  Það er mikill fengur fyrir Keflavík að hafa tryggt sér krafta Hauks en 2. flokkur karla er skipaður mörgum af okkar efnilegustu leikmönnum sem urðu m.a. bikarmeistarar í ár.