Fréttir

Heiður spilar - Hittumst fyrir leikinn
Knattspyrna | 18. maí 2014

Heiður spilar - Hittumst fyrir leikinn

Hamborgarar, hamborgarar!  Allir stuðningsmenn eru velkomnir í félagsheimilið í Íþróttahúsinu fyrir  leiki í sumar en þar verður opnað klukkutíma fyrir hvern leik.  Ekki þarf að skrá sig í neina klúbba eða slíkt en í staðinn verður opið fyrir alla sem vilja mæta og spjalla.  Það er upplagt fyrir alla fjölskylduna að mæta en boðið verður upp á grillaða hamborgara og gos á góðu verði.  

Kristján þjálfari mætir um 40 mínútum fyrir leik og segir nokkur vel valin orð.  Heiður kemur og spilar nokkur lög í félagsheimilinu milli 18:00-19:00 og setur stuðningsmenn í rétta gírinn fyrir leikinn.

Athugið að húsið opnar kl. 18:00 og kveikt verður í grillinu á sama tíma.

Myndin með fréttinni er fengin að láni hjá Víkurfréttum.