Fréttir

Heimaleikur gegn Þór/KA í bikarnum
Knattspyrna | 11. júní 2012

Heimaleikur gegn Þór/KA í bikarnum

Það verður liðs Þórs/KA sem verður andstæðingur Keflavíkur í 16 liða úrslitum Borgunarbikars kvenna en dregið var í dag.  Keflavík vann Sindra í síðustu umferð en Þór/KA hefur keppni í næstu umferð eins og öll liðin í efstu deild.  Norðanstúlkur eru sem stendúr í efsta sæti Pepsi-deildarinnar þannig að okkar stúlkur fá svo sannarlega verðugt verkefni í bikarnum.

Keflavík og Þór/KA hafa einu sinni mæst í bikarnum en það var árið 2006.  Liðin léku þá á Akureyri í 2. umferð keppninnar og Keflavík vann þann leik 4-0.  Keflavík hafði áður leikið tvívegis við Þór í bikarnum; Keflavík vann 2-1 í undarúrslitum árið 1991 en ári seinna vann Þór öruggan 7-0 sigur í 1. umferð keppninnar.