Fréttir

Heimsókn 8. flokks í Kópavog
Knattspyrna | 1. júlí 2013

Heimsókn 8. flokks í Kópavog

Það hefur skapast hefð fyrir því s.l. 6 sumur að Keflavík og Breiðablik hittast og spila æfingaleiki í 8. flokki (3 - 6 ára). Á mánudag í s.l. viku fór um 40 manna hópur frá Keflavík í heimsókn til Blika þar sem spilaðir voru nokkrir æfingaleikir. Þetta var stór dagur hjá börnunum og mikil eftirvænting hafði skapast, jafnt hjá þeim yngri sem og þeim eldri.  Leikgleðin og baráttan, í blíðunni í Kópavoginum, var algjörlega ósvikin, en myndirnar hér að neðan tala sínu máli :-)