Heimsókn til Úlfanna
Í fyrramálið heldur fríður hópur Keflvíkinga til Englands og er förinni heitið til enska 1. deildarliðsins Wolverhampton Wanderers. Þeir Sigurbergur Elísson og Viktor Gíslason munu æfa með liðinu fram á miðvikudag en þeir félagar eru meðal okkar efnilegustu leikmanna og skrifuðu á dögunum undir samninga við Keflavík. Strákarnir munu æfa með unglingaliði Úlfanna og leika tvo leiki. Með í för verða Kristján Guðmundsson, þjálfari meistaraflokks karla, og Valgeir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar. Þeir ætla að fylgjast með æfingum og skoða aðstæður hjá Úlfunum og jafnframt ræða við forráðamenn þar á bæ um hugsanlegt samstarf félaganna. Það þarf ekki að hafa mörg orð um að Wolverhampton Wanderers er eitt fornfrægasta félag enskrar knattspyrnu. Undanfarin ár hafa þó verið heldur mögur hjá liðinu og síðustu tuttugu árin hefur það aðeins leikið eitt ár í efstu deild í Englandi. Liðið er nú í 7. sæti í næstefstu deild á Englandi. Þekktasti leikmaður liðsins undanfarin ár er líklega Joleon Lescott sem nú leikur með Everton og lék á dögunum sinn fyrsta landsleik fyrir England. Meðal þekktra leikmanna sem leikið hafa fyrir Wolves eru Billy Wright, John Richards, Kenny Hibbitt, Emlyn Hughes, Andy Gray, Steve Bull, Robbie Keane, Dennis Irwin og Paul Ince.
Sigurbergur og Viktor æfa með Wolves.